Going Postal - Skilgreining með dæmi
Já, maður er sko staddur í Ameríkunni, þar sem byssur drepa ekki fólk.
Ég veit ekki hvort þetta þykir fréttaefni heima, en
svona gerist víst enn. 'Kalifornía' er kannski ekki nákvæm staðsetning,
hérna, þetta ætti að setja hlutina í samhengi. Ég er þar sem græna örin er, 7 manns voru skotin í gráu byggingunni hægra megin við rauða stopp merkið, 0.8 mílur eða ca. 1.3 km frá mér. Við keyrum þarna framhjá á leiðinni út í búð og við önnur dagleg tækifæri.
Þetta gerðist í krigum 9:15pm að staðartíma í gær, þá barst tilkynning til lögreglunnar um skotkvelli, 5 klst síðar var búið að finna 6 lík á svæðinu, þar af konuna sem talið er að hafi skotið hina. Tvær konur voru fluttar á sjúkrahús þar sem önnur lést en hin er (síðast þegar ég vissi) enn í lífshættu.
Ég man þegar við keyrðum framhjá þarna fyrst og ég sá USPS merkið fyrir utan og sagði "Það er þá ekki langt fyrir okkur að fara með póstkortin í póst".
Vonandi er mér fyrirgefið að senda ekki póstkort, allavega ekki í bili.
Hérna er fréttin ein og ég las hana stuttu eftir að ég settist niður með morgunmatinn minn í morgun...
Annars er lítið um önnur tíðindi. Við íslendingarnir á svæðinu skruppum út að borða saman á sunnudaginn, vorum 12 saman og spjölluðum hátt á íslensku og átum ruddalega - þjóðinni til sóma.
HD Cable á 2405FPW skjá
Það er svo gaman að geta horft á Battlestar Galactica í beinni útsendingu, en það er líka gaman að horfa á það af harðadisknum í afruglaranum. Við lifum í sannkallaðri tækniparadís.
Og það er sól úti, btw, ég sé það í gegnum gluggatjöldin.
Annars hjóla ég í skólann á hverjum degi, það er ekki hægt annað, hjólreiðafólkið er búið að taka yfir göturnar hérna allt í kring, hvergi hægt að hvorki keyrna né labba. Það eru hringtorg hér líkt og heima, nema hérna eru þau fyrir hjól. Ég gat ekki annað en skellt uppúr þegar ég rakst á eitt slíkt í fyrsta skiptið, hjólaði heilan hring auka og fék ill augnaráð úr öllum áttum.
Svo eiga hjólin réttinn, ég var varaður við þegar ég fékk hjólið sem ég er á, "maður er hjólaður niður" ef maður passar sig ekki þar sem maður þarf að labba yfir hjólastígana.
Það er $150 sekt fyrir að reiða ekki hjólið sitt á göngustígunum, eða svo er manni tilkynnt á skilltum meðfram þeim. 'Nei, andskotinn' hugsaði ég, 'getur ekki verið að þeir sekti mann í alvörunni'. Svo eitt skiptið, þegar ég var að taka krók eftir göngustíg vegna framkvæmda við hjólastíginn, sé ég hvar tveir lögregluþjónar, á hjólum, eru búnir að stoppa tvær stelpur sem voru greinilega að gera líkt og ég, sleptu því að reiða hjólin. Ég vippaði mér snarlega af baki og tók við að labba með hjólið. Það var greinilegt að önnur tók þetta mjög nærri sér, hún var hágrenjandi - ekkasog og allur pakkinn. Það tók nú ekki mikið á lögregluþjóninn, hann var greinilega öllu vanur, en ég gat ekki annað en vorkennt helvítis stelpunni. "Waaaa, ég er í verkfræði og á engann pening, wwaaa. Ég drekk úr pollum og ét köngla, *sniff sniff*". Löggan var með sólgleraugu (löggusólgleraugu, ekkert minna) og starði kalt á stelpuna á meðan ég laumaði mér framhjá með mitt hjól. Ég kunni nú ekki við að stara, en er nokkuð viss um að mannfjandinn lét sektina standa - ég er ekki frá því að stelpan hafi staðið glennuleg úti á horni þegar ég var að labba heim í gærkvöldi.
Í gær fór ég nefninlega í gær að sjá standup mep John Cleese. Hann er helvíti fyndinn enn, og á svona helvíti myndarlega (og þónokkuð fyndna) dóttur sem var með honum í sýningunni. Þau tóku kaliforníu útgáfu af 'Dauða páfagauknum' þar sem í staðin fyrir páfagaukinn var 'trophy wife' í búri sem var, skv sölumanninum, als ekki dauð.
Hristi búrið, sko hún hreyfði sig!
Gudmunder, Guomundur, Gurgleblonk
Ýmis nöfn ber að nefna. Þessir kanar eiga í stökustu vandræðum með 'Guðmundur' og þó margir reyni sitt besta við að bera það rétta framm eru þeir fleiri sem bara skálda eitthvað sem hljómar, eða lítur út, uþb eins. Best var samt þegar ég kynnti mig fyrir 'Jen' sem er með mér í Talnafræði. Hún spurði mig hvort ég væri kallaður einhverju styttra nafni (...svipað og í 5th Element, nema hún er ekki Bruce og ég er ekki Milla - hún gæti hinsvegar verið systir Millu ... og ég bróðir Bruce? =). Þegar ég sagði 'Gummi' kom undarlegur svipur á hana, eftir smá stund sagði hún "Like Gummy Bear?" Ok, núna er ég Gúmmí Bangsinn... þetta er eins og að vera kominn í barnaskóla aftur :/
Gummi Gúmmí Bangsi, Gummi GúmmíBangsi GUMMIGÚMÍBANGSI!!! AAAAHHHH!!!
Stoltur Cadillac eigandi!
Núna er ég, Guðmundur, stoltur Cadillac eigandi. Eða verð það á mánudaginn þegar ég er búinn að fara með pappírana í DMV.
Þennan bíl:
http://fyad.org/9xtbkeypti ég.
Woot.
Myndir!
Jæja, ég er búinn að setja inn nokkrar myndir af ferðinni sem við skruppum til LA um síðustu helgi.
http://photobucket.com/albums/f366/gakera/LosAngeles14Jan/?start=allVið keyrðum í gegnum Malibu á leiðinni niðrettir og gistum í Santa Monica, sem er hlutborg í LA. Það eru reyndar engar myndir frá ferðinni í Universal Studios, en það vita nú allir hvernig þar er um að litast (Hint: Caarazy). Pabbi tók nokkrar þar en er ekki búinn að setja þær inná tölvuna, bæti þeim við þegar þær berast.
Svo fæ ég myndavélina lánaða einhverntíman og tek fleiri myndir af flotta veðrinu sem er hérna.
Af tíðarblóði og öðrum tíðindum
Já, tíðarblóð. Þegar við mættum fyrst í íbúðina okkar, daginn eftir að við lentum, tók á móti okkur óþrifnaður af hæstu og iðandistu gráðu. Kellingin sem leigði íbúðina á undan okkur hafði lofað að þrífa íbúðina eftir dóttur sína sem hafði búið hérna síðustu mánuði. Sú hafði verið í skólanum, UCSB, en lent í dópinu, hafsjó af dópi, ef marka má ummerkin. Svo skemmtilega vill til að það fyrsta sem ég rak augun í, þegar við hættum okkur yfir Kakkalakkaland (dyramottuna) og inn á Blettaflöt (vínyldúkinn), var lófastór rauður blettur í Skriðbæli (teppinu). Ég held því framm að þetta sé (nb. ekki var eða 'hafi verið') tíðarblóð eða allavega einhverskonar blóð. Eftir að Hreingerningarhersveitin (sem Kellingin borgaði fyrir) tók 6-8 tíma í að þrífa, sem samt var ekki nóg, og við fórum N ferðir með teppahreinsivél yfir Rauðínu (já, ég skírði blettinn) situr hún enn sem fastast á miðju stofugólfinu. Við enduðum með að kaupa litla mottu í svipuðum lit og teppið og núna fær Rauðína að dúsa þar undir, einskonar skammarkrókur fyrir tíðarblóð...
Núna er hinsvegar allt orðið hreint og fínt, meiraðsegja Rauðína - eins hrein og best skal láta, en til staðar þó enn. Við henntum meirihluta af því sem við fundum hérna inni, glösum, áhöldum, ílátum og fleiru sem var handan björgunar. Sófinn sem var undir stofuglugganum ældi fjalli af troð (þessu hvíta gervi ógeði sem er inní honum) þegar við færðum hann til að þrífa teppið undir honum, þannig að hann endaði fyrir utan íbúðina. Planið var að ákveða hvort við ætluðum að henda honum eða reyna að þrífa og nota. Sú ákvörðun var tekin fyrir okkur því eftir að við fórum út að borða (það var ekkert til í íbúðinni, hvorki til að elda eða elda með, til að borða með né af eða sitja við né á) var sófinn horfinn þegar við komum til baka. Seinna komst ég að því að hann lifir góðu lífi enn í íbúð 12 hérna við hliðina á okkur, og eftir að honum var bætt þar við er hægt að tala um eina mublu inn í þeirri íbúð (ég tel múrsteina, pappakassa og glanspússaða járnplötu ekki sem mublur). Fólkið í íbúðunum hérna í kring er mestmegnis fátækir námsmenn, með áherslu á fátækir og námsmenn í tveimur svigum og gæsalöppum með kommum (("'svona'")). Það var frekar lýsandi gólið sem við heyrðum óviljandi daginn sem við komum að skoða - "HEY STEVE, I BLEW A .24!" - þar er átt við áfengismagn í blóði...
Nú þegar við erum búin að koma okkur almennilega fyrir og við vorum að koma með nýtt rúm (notað, keypt á $100) heim og erum búin að koma endanlegu skipulagi á svefnskipan. Mamma og pabbi hafa 2 sundurlæg rúm inní herbergi og ég fékk stóra rúmið en sef framm í stofu (allir sáttir, allavega ég og þ.a.l. allir). Pabbi komst í Craigslist.com og er búinn að þramma sem óður um þá síðu, finnandi allt frá forláta borðstofuborði með 6 stólum (sem við keyptum) niðrí notuð dömubindi sem félagsskap fyrir Rauðínu (sem við keyptum ekki)...
Ég er búinn að skrá mig í tvö námskeið, Óevklíðska rúmfræði (algjört gúmmelaði) og Tölulega greiningu ("Q: Whose calculator can tell me what 3*4 is? A: LOW BATTERY?"). Ég þarf að skrá mig í eitt námskeið enn og valdi Talnafræði, aðalega útaf gellunum þar (já, það eru sko gellur í stærðfræðinni hérna - ... ). Talandi um gellur... þær eru allstaðar hérna. Þær sem seldu okkur rúmið? Gellur! Þær sem afgreiða mann í matvöruversluninni? Gellur! Þær sem tala opinskátt um kynfarir sínar meðan þær afgreiða mann í matvöruversluninni? Gellur sem betur fer, og fá tips fyrir!
Við fórum í Skreppitúr til LA um helgina, ég keyrði djarfur á bílaleigubílnum á hraðbraut alla ströndina, gegnum Malibu (þar sem Barbie býr, við sáum hana, húsið, bílinn og furðu frjóa stóðhestinn hennar) og niður í Santa Monica. Þar fundum við ódýrt mót-hel, Pacific Sands (og sá sandur var, af herbergjunum að dæma, legsandur), og löbbuðum niðrá hina frægu Santa Monica Pier, þar sem Baywatch gerðist (og gerist enn, ég sá David Hasselhoff fremja götugjörning með litlum spegli og 5 puttum - ekkert klæmið við það). Um kvöldið röltum við göngugötu í grendinni og ég kom inn í alvöru Apple búið (OMG) en flúði áður en ég náði að festa klærnar í einhverju hvítu, plastkendu og rándýru. Þar átum við á ítölskum veitingastað með alvöru ítölskum þjóni með þykkum New Jersey hreim (þjónarnir á ítalska veitingastaðnum sem við stoppuðum á í Malibu voru alvöru ítalar, afkomendur Fasista og alles). Síðan á sunnudaginn fórum við í AMAZING LA TOUR um Beverly Hills og Hollywood og enduðum í Universal Studios. Crash course í LA, helvíti gaman. Sáum hvar Justin Timberlake á heima og hvar Marilyn Monroe átti heima. Sáum Hollywood skiltið og stjörnugangstéttina frægu. Í gær var svo Martin Luther King Jr. dagurinn og frí vegna þess, þá fórum við að kíkja á risafiðrildin sem eru hérna yfir "veturinn". Það var frekar magnað, ekki nærri eins klént og það hljómar, þau eru ca. lófastór og frekar skrautleg - og fjölmörg, hanga um 10.000 saman í knippi, og knippi út um allt. Maður gæti ímyndað sér pínulitlar leðurblökur, sérstaklega ef þau færu öll af stað í einu, trúlega stæði ekkert eftir af manni annað en beinagrindin ef maður lenti í svoleiðis.
Í dag gerðum við pabbi það gott á ebay, keyptum Cadillac á $3000 dollara, förum á föstudaginn að ná í hann til Fresno, sem er ca klukkutíma og korters akstri frá okkur - nálægt LA. Þá er allt komið, okkur vantar bara Sjónvarp, en þar sem ég er kominn með netið get ég náð í alla þá þætti sem mig langar að sjá (sagði einhver 'nýir BSG' eða '5. sería af 24'?).
Veðrið er búið að vera kallt, um 15°C - ég segi kallt bara til að stuða í ykkur heima þar sem fólki er ráðlagt að moka snjó frá ruslageymslunum HAHAHA! Vonandi fer að hlýna hérna - það er svo fúlt að þurfa að hjóla í meira en bara stuttermabol og sitja í sólinni til að hlýja sér.
Kveðja, Gummi.
Ps. ef þið viljið senda tölvupóst, senda þá á gakera@gmail.com frekar en hotmail, ég nota hann ekkert.
We get signal!
Kominn með INTERNETIÐ HEIM! Woot. Loksins. Það þýðir að ég fæ að nýta mér sér Íslenska bókstafi í öllum orðum! Það er næstum jafn erfitt og að sleppa þeim alveg. Beztir eru þeir í hófi.
Núna get ég sest niður í róleg heitum og skrifað hvaða ævintýrum ég hef lent í síðustu daga. Þau eru sko fjöl mörg get ég sagt. En fyrst klósettferð og mjólkurglasið sem ég hellti mér fyrir 10 mínútum.
Þannig að, stay tuned, stutt í næstu færslu.
+10 bónus fyrir þá sem eru vakandi kl 01:30 heima og lesa þetta "fresh".
Enga spes stafi takk!
Skyldi einhver spesstafur laumast inn af puttunum?
Ekki gott er skrifa mis af hann...
Bah, thetta gengur ekki. 'Eg kann ekki ad breyta lyklabordinu 'a 'Islensku, svo sp'a m'in raetist, 'eg neydist til ad skrifa svona.
Allt gott ad fr'etta, vid erum komin 'i S'olr'ika Kaliforn'iu thar sem allt er gott og fallegt. Erum en 'a h'oteli medan verid er ad standsetja 'ib'udina sem vid f'aum, vonandi 'i dag eda 'a m'orgun.
S'ol, s'ol, s'ol og meiri s'ol. Heitt, kalt, heitt til skiptis, thad er kallt thar sem s'olin er ekki og heitt thar sem h'un er, einfallt m'al.
Thad er 'otrulega fallegt h'erna, 'eg vildi 'eg gaeti sett myndir strax en 'eg er ekki med adstoduna til thess, thetta er ekki m'in talva. Akk'urat medan 'eg skrifa thetta er 'eg ad horfa 'a sj'o, p'almatr'e og onnur tr'e, drekaflugu, sundlaug, fjoll, bla'an himin og glampandi s'ol.
Pabbi er b'uinn ad kaupa s'er sima og minn virkar h'erna en 'eg 'a eftir ad f'a m'er local n'umer svo 'eg geti notad hann og haldid fj'arhagslegri gedheilsu minni 'obreyttri.
F'or 'i fyrsta t'imann 'i dag. Fae l'iklegast ekki leyfi hj'a pr'ofessornum til ad taka hann thar sem 'eg thurfti ad sitja 'a golfinu... Greinilega mikil ads'okn 'i Evkl'idska r'umfraedi h'erna.
N'una er thumalst'or kongul'o ad skrida 'a veggnum og 'eg er farinn, h'un vinnur.
Bless Kalda Land og Hlýja Þjóð
Nú styttist í stóru stundina og ég er strax farinn að hugsa með söknuði til ykkar allra sem ég er að skilja eftir. Ég ætla mér að nota tæknina og kveðja með þessum skilaboðum og þeir sem vilja taka undir geta skrifað Comment hér fyrir neðan. Sniðugt, non?
Ég er uþb búinn að pakka og uþb farinn að hafa áhyggjur af því að hafa pakkað allt of miklu. Það er spurning hversu þung þessi 23kg eru eftir allt saman, og hvort þau séu eitthvað léttari hjá þeim í Bandaríkjunum. Segist bara hafa pakkað 23 víkinga kílóum, þeir geta ekkert sagt við því og ef þeir reyna þá blóta ég bara ásum eða einhverjum andskotanum til að hræða þá (og verða skotinn).
Þetta ætti nú að verða í lagi svo framarlega sem ég næ að halda aftur af lönguninni til að öskra JALLA JALLA og sveifla einhverju beittu (djöfull langar mig að prófa það).
Það fyrsta sem ég geri á morgun þegar ég vakna verður að rífa þessa tölvu í sundur og dreifa jafnt út um alla íbúð, til að minnka tap mitt ef brotist verður inn, þannig að það er best að klára kveðjuna bara núna.
Thannig ad naesta faersla sem eg geri verdur einhvernveginn svona thangad til eg nenni ad stilla lyklabordin tharna uti a Islensku.
Bless elsku fólk, bless kæra fólk og bless bara fólk ég mun sakna ykkar allra.
Gummi A.
Klisju listi - Kljistinn.
Ég er að setja saman lista yfir það sem mig langar að gera í Ameríkunni og þar sem ég er svangur snúast fyrstu atriðin á honum um mat (þau eru matriði ... )
Borða á Big Kahuna Burger Ok, slíkur staður er ekki til í alvörunni :(- Fara á White Castle (samnefnd mynd) og Red Lobster (Simpsons)
- Borða á Breakfast Diner, morgunmatur allan sólahringinn - æði!
- Fá Kínamat sendann heim um miðja nótt og japla á næstu daga.
- Sjá hve mikið er hægt að kaupa fyrir $20 á McDonalds.
- Smakka Root beer og Cream soda, án þess að æla ef hægt er.
Maður verður að prófa að vera með bjórhatt á íþróttaleik og drekka bjór beint úr kút í strandpartýi.
Nálægðin við Hollywood gerir það að verkum að ég ætla að sitja um nokkrar kvikmyndastjörnur og fá eiginhandaáritanir eða henda eggjum í þær, eftir atvikum.
Svo verður maður að klifra upp á HOLLYWOOD skiltið og horfa á sólina setjast í gegnum mengunarskýið sem liggur að jafnaði yfir LA. Mig langar líka að fara í þyrlutúr yfir LA, skoða borgina úr lofti.
Þar sem ég verð í Bandaríkjunum, sem eru jú byggð á réttindum fólks til að mótmæla, verður maður að mótmæla einhverju. Mér datt í hug að mótmæla aftöku einhvers, ef svo 'heppilega' hittist á ...
Veit ekki hvort ég þarf þess, en mig langar að taka bílpróf án þess að keyra beinskiptan bíl, mér finnst magnað að það skuli vera hægt.
Síðan verð ég að fara á einhverskonar nördaráðstefnu, Star Trek/Wars, Comic, Tölvuleikja, bara einhverskonar ráðstefnu þar sem eru nógu ógeðslega miklir nördar eins og maður sér í sjónvarpinu.
Vonandi kemst ég yfir að gera þetta allt saman, og ef tími gefst til þá reyni ég að læra eitthvað í skólanum þarna.