Going Postal - Skilgreining með dæmi
Já, maður er sko staddur í Ameríkunni, þar sem byssur drepa ekki fólk.Ég veit ekki hvort þetta þykir fréttaefni heima, en svona gerist víst enn. 'Kalifornía' er kannski ekki nákvæm staðsetning, hérna, þetta ætti að setja hlutina í samhengi. Ég er þar sem græna örin er, 7 manns voru skotin í gráu byggingunni hægra megin við rauða stopp merkið, 0.8 mílur eða ca. 1.3 km frá mér. Við keyrum þarna framhjá á leiðinni út í búð og við önnur dagleg tækifæri.
Þetta gerðist í krigum 9:15pm að staðartíma í gær, þá barst tilkynning til lögreglunnar um skotkvelli, 5 klst síðar var búið að finna 6 lík á svæðinu, þar af konuna sem talið er að hafi skotið hina. Tvær konur voru fluttar á sjúkrahús þar sem önnur lést en hin er (síðast þegar ég vissi) enn í lífshættu.
Ég man þegar við keyrðum framhjá þarna fyrst og ég sá USPS merkið fyrir utan og sagði "Það er þá ekki langt fyrir okkur að fara með póstkortin í póst".
Vonandi er mér fyrirgefið að senda ekki póstkort, allavega ekki í bili.
Hérna er fréttin ein og ég las hana stuttu eftir að ég settist niður með morgunmatinn minn í morgun...
Annars er lítið um önnur tíðindi. Við íslendingarnir á svæðinu skruppum út að borða saman á sunnudaginn, vorum 12 saman og spjölluðum hátt á íslensku og átum ruddalega - þjóðinni til sóma.

4 Comments:
ég er búinn að stela transformers bollanum þínum....and there's nothing you can do about it. Kveðja, Kári eðlisfr.
Það er ekki rétt, ég get sigað Baldvini á þig!
Hann ætlar að skreppa heim 10. feb - passaðu þig á honum, hann er með viskí! URRDANN BALDVIN!
Eru hjólastígar til þess að reiða hjólin? Kanar eru klikk!
Reyndar er eitt það skemmtilegasta við að kíkja á þessa síðu þína að skoða ruglið sem maður þarf að skrifa til að commentið postist (athuga vel síðustu tvö orðin, ekta á la Arnarbælisafkomendur...)
Ég er einmitt nýkominn heim eftir að hafa fengið mér bjór og spila pool.
NOWUGO!
Skrifa ummæli
<< Home