Lexía: Nota eitt tölvupóstfang...
Já, það er best að vera bara með eitt tölvupóstfang, sérstaklega ef maður ættlar að reynað fylgjast með því hvað hinir krakkarnir í skólanum eru að gera.
Ég fór út án þess að forwarda háskólapóstinum á gmail og útkoman eru uþb 200 ólesin skeyti, það nýjasta að auglýsa partí útskriftarnema sem var á laugardaginn... án mín... :(
Gott að ég notaði laugardaginn í að hjálpa bróður mínum að flytja og eyddi kvöldinu í vídjó...
Well, ef einhver les þetta þá má bjóða mér í næsta partý ^_^
Ég er búinn að stilla forward á háskólapóstinn.
Kominn heim og vel sofinn
Þá er maður lentur og búinn að snattast heilan helling. Það var ýmislegt sem þurfti að reddast þegar ég kom, sími, banki, sólgleraugu, hár. Núna er það yfirstaðið og þá tekur alvaran við - mála og taka til í herberginu. Úff.
Annars gekk heimferðin vel, við þurftum hvergi að bíða lengi, frekar hitt, í Boston var ég kallaður upp með nafni þegar vélin var að fara. Ekkert vesen á tollinum hérna heima sem betur fer, og ég keypti mér nýjan síma í fríhöfninni. Fyndið hvernig það eina sem maður græðir á að kaupa í fríhöfninni er áfengi, allt annað er bara ekkert ódýrt. Síminn sem ég keypti var skítódýr en hann er það líka hérna í bænum svo ég sparaði ekki neitt mikið, og sá sparnaður fór svo bara í að borga reikningana hvort eð er.
Svo ætla ég að nota tækifærið og mála herbergið, það er nánast tómt þar sem ég færi fullt af drasli upp þegar ég fór út. Ég byrjaði á einum vegg í gær og ætlaði bara að skafa smá í kringum naglaförin en þá datt gamla málningin af í A4 stærðar bútum þannig ég þurfti að kaupa grunn og byrja á því.
Mín reynsla af viðhaldi er aldrei byrja.
Sex Flögg og hálft-sex próf
Þar sem ég á að verað læra er náttúrulega tilvalið að blogga í staðinn. Ég átti alltaf eftir að setja myndirnar ú Six Flags á netið síðan við fórum þangað fyrir uþb mánuði. Þá fékk ég heimsókn frá Óla, Vidda og Gunna Who, sem var mjög gaman, fínt að geta verið maður sjálfur án þess að allir haldi að maður sé klikkaður.
Við fórum út um allt, byrjuðum á því að keyra til LA og gistum í Santa Monica í tvær dýrar nætur. Fórum á Hooters, skylda, sem var magnað. Það er engin lygi, gellurnar þar er frekar fokkin flottar. Við sátum alveg við innganginn og höfðum ágætis útsýni á sætu sætavísu skvísuna. Það var bannað að taka myndir.
Seinna kvöldið byrjuðum við á aðeins fínni stað með töluvert betri mat, undarlegt en satt þá var hann samt jafn dýr og Hooters, en við tókum ekki eftir því fyrr en þá, enginn pældi í því á Hooters. Svo fórum við á sportbar þar sem okkur tókst að eyða enn meiri pening og Viddi og Gunni í ölæði sínu stálu poolborði af einhverjum gaurum sem svo rústuðu þeim ... í pool. Þegar við vorum búnir að eyða nóg af pening þar fórum við á stað sem hét einfaldlega 217, þar var $5 'skyldu frjálst framlag' sem átti víst að fara til góðs málefnis. Ok, hef séð það verra. Svo þegar við komum inn var verið að bjóða upp fólk. Við höfðum víst álpast inn á þrælauppboð. Sannleikurinn var ekki svo slæmur, þetta var 'date auction' þar sem fólk gat borgað fyrir mismunandi súr stefnumót með þeim sem var verið að bjóða upp. Akkúrat þegar við löbbuðum inn var verið að bjóða í gaur í jakkafötum en það lagaðist snarlega þegar næstu 3 uppboð voru gellur, og sumar ekki amalegar, sérstaklega sú sem reif utan af sér kjólinn. Svo kom shokkerinn, tveir bræður voru til boða og salurinn brjálaðist. Ég og Óli sátum rólegir í VIP horninu aftast á meðan Viddi var að reyna við allt sem hreyfðist og Gunni var uppá sviði að dansa. No lie. Það munaði minstu að hann hefði verið boðinn upp.
Eftir ævintýri okkar í LA var farið í
Six Flags, sem er frekar magnaður rússíbanagarður. Þar rákumst við á Berg af
bergur.is frægð sem hafði komið frá San Diego þar sem hann var að læra að hlaupa. Við vissum nú af honum þarna en rákumst samt á hann nánast eins og það hefði verið óvart. Um þá rússíbana sem við fórum í er allt gott að segja, fyrsti var ný opnaður og frekar krazy, eins og sést á
meðfylgjandi myndum. Maður settist í sætin
svona og fór svo af stað
svona. Frekar klikkað. Síðan biðum við í 3 klukkutíma í röð fyrir einn rússíbana. Rétt er það, 3 heila klukkutíma fyrir einn rússíbana, ekkert meir. Hann var þess virði. Rétt er það, hann var þess fokking virði. Hann hét einfaldlega
X og var klikkaður. Við Gunni náðum að bókstaflega hlaupa á milli rússíbana, komumst í 6 stykki sem er frekar gott miðað við að 3 af 8 klukkutímum í garðinum vorum við í einni röð. Mjög gott bara.
Svo sendi ég strákana heim með fullt af drasli fyrir mig sem ég nennti ekki að taka sjálfur. Um að gera að nota ferðina.
Og nú sit ég hér og á að verað læra fyrir 2 próf og skrifa eina lokaritgerðakippu, 5 stuttar og 2 langar ritgerðir. Sem er undarlegt þar sem alla mína háskólagöngu heima hef ég ekki notað fleiri orð en {lát, svo að, þá er, komið}, frekar mikil breyting að þurfa að farað nota nafnorð og sagnir aftur.
30°C+ og of heitt fyrir nærföt
Já, eftir helgi af rigningu af biblískum stærðargráðum kom loksins sól. Sól með meiru. Hitinn var í kringum 32°C í dag og glampandi, skínandi, brennandi sól. Eftir tíma var svo heitt að ég varð að fara heim og skipta í sundstuttbuxurnar sem ég keypti fyrir eyðimörkurgönguna Coachella, og skella mér í sund. Reyndar ákvað ég að fá mér að éta og lesa smá fyrst, og þá varð ég var við að það voru einskonar mótmæli í gangi nálægt matvöruversluninni á campus. Það voru risastór plaggöt með myndum af fóstrum sem var búið að 'eyða', þærf voru frekar blóðuguar og ógeðslegar og höfðu óneitanlegt aðdráttarafl. Ég þrammaði hænuskrefum í átt að óvirkinu þar sem ég rakst á dömu sem greinilega var með þessu liði. Hún var ósköp kurteis og ágæt að tala við hana, þó það var greinilegt að hana langaði rosalega til að fá mig hennar band. Hún átti samt nokkra góða punkta og trúarbrögð komu hvergi inn í málið, þannig að ég spjallaði við hana þangað til fylgjendur fóstureyðinga fóru að garga, sem fyrir þeim var greinilega jafngilt því að rökræða. Á meðan daman og ég vorum að tala um hvenær er hægt að draga línuna á milli fósturs og einstaklings. Sumir voru fastir á því að lífið byrji við fæðingu, en þar sem ég var tekinn með keisaraskurði fanst mér það svoldið slæm viðmiðun og var meira á því að það væri í kringum 12 vikur. Eftir að hafa spjallað við hana í uþb 10 mín og hlusta á mótmælendurna öskra í uþb 10 sek fór ég loksins í sund.
Það var snilld, þó ég hafi lítið synt og meira legið í sólinni, baðaður í SPF 30. Þeir voru mjög stolltir af því að vera nýbúnir að opna 'SPA', sem í raun var einn heitapottur. Ég hló létt að því, heitur pottur er nú ekki neitt merkilegt heima. Fyrir mér er SPA staður með starfsfólki, ekki bara pottur með vatni.
Prófum að prófa próf
Allir búnir í prófum bara, ef marka má almennu brotin sem fólk er svo hrifið af á MSN. Ég kláraði líka próf í þessari viku, verst að það voru miðsannarpróf en ekki lokapróf, það eru jú 4 vikur eftir hjá mér. Fjórar vikur af sól og sumarlestri, gerist ekki betra.
Annars er ég að reynað finna út úr því hvernig er hægt að koma bílnum og öllu draslinu sem í honum mun vera heim þegar ég fer heim. Ég er búinn að senda nokkra emila á ýmiss fyrirtæki sem bjóða upp á gámaþjónustu en þau sem hafa svarað hafa aldrei heyrt af Íslandi áður. Ég er farinn að halda að það væri einfaldara að taka frá landssvæði hérna í nágreninu og endurstofna Ísland þar sem hlutland í Ameríku. Ekki eins og það sé ekki nóg pláss, þetta væri uþb prómills aukning á íbúafjölda Bandaríkjanna.
Ef allt þetta gengur eftir þá get ég loksins bara keyrt bílinn heim.
Bannað að kúka á Coachella
Ég var að koma heim af
Coachella tónlistarhátíðinni, eða öllu heldur var ég að vakna eftir að koma heim af Coachella hátíðinni. Við ákváðum að keyra beint heim strax eftir að tónleikarnir enduðu á miðnætti á sunnudaginn og sem betur fer dugði bensínið alla leið heim, það munaði líklega ekki miklu, þetta voru rúmlega 45o mílur fram og til baka.
Af þeim sem ég sá voru Daft Punk bestir, ég tók uþb milljón vídjó (ok tæplega 30) á þeim tónleikum, þau eru
hérna á Google Video. Ég tók fult af myndum,
hérna eru þær nokkurnvegin ósorteraðar. Auk Daft Punk sá ég Tool, Depeche Mode, Sigur Rós, Madonnu, Common, Carl Cox, Ladytron, The Walkmen, Imogen Heap, Lady Sovereign, Eagles of Death Metal, Platinum Pied Pipers, Brother Ali, Yeah Yeah Yeahs, Bloc Party, Scissor Sisters, Gnarls Barkley, Coldcut, The Go! Team, Jazzanova og Murs. Frekar geggjuð hátíð, gott stuff.
Ég fór með Frikka sem er hérna úti í námi líka og vinum hans að heiman, Danna og Hildi Sigrúnu. Við keyptum tjöld og svefnpoka í Kmart og héldum af stað. Okkur var vísað á tjaldreit J5, svalasta tjaldreitinn af augljósum ástæðum. Við hliðina á okkur í J4 voru atvinnutjaldarar og hasshausar með meiru. Þau voru með stórt partýtjald, fult af stólum og vatni og voru gjafmild á það. Ég spurði, það var ekki sýra í því - sögðu þau og ég sá ekkert óeðlilegt þannig að allt í góðu. Það var líka ágætt að geta setið í skugga þegar hitinn var í kringum 27°C - í skugga, og ekki ský á himni. Coachella er nebblega í miðri eyðimörkinni og þar búa engin ský. Hátíðin var sett þannig upp að tjaldsvæðið var aðskilið frá aðalsvæðinu, og eftir að maður fór inná tónleikasvæðið var bannað að fara út og koma inn aftur, og það var bannað að taka með sér vatn eða nokkuð annað inná svæðið. Svo ef maður vildi kaupa sér áfengi, sem var leyfilegt, þurfti maður að fá armband og fara inná sérstakt svæði - bjórland - þar sem bjórinn bjó. Ekki mátti taka hann með sér út úr bjórlandi, enda leiðir slíkt til algerrar eymdar og vonleysis. Hinsvegar þurfti ekki mikið að gera til að nálgast gras, lítið meira en að draga andann djúpt og halda í sér í smá stund. Það voru bókstaflega allir með annaðhvort jónur eða pípur, undarlegt hvernig áfengi - sem var leyfilegt - var nánast ósýnilegt, á meðan gras - sem var bannað - var út um allt.
Hátíðin gekk mjög vel og ég var ekki var við neitt vesen, engin slagsmál og ekki dautt fólk útum allt. Ég sá einn gaur sem koxaði á einhverju en enga með dólgslæti eða derring eins og maður lendir í þegar allir eru rúllandi fullir. Kanski hátíðarhaldarar heima ættu að taka upp þetta kerfi, leyfa áfengi á blaði en banna í framkvæmd á meðan þeir banna gras á blaði en leyfa í framkvæmd. Það voru jú 'löggur' útum allt þarna, örugglega fleiri starfsmenn en áhorfendur, en engin virtist beita nefinu til að stofna til vandræða, og það voru engir dóphundar - þeir hefðu jú urrað á alla.
Ég ákvað að vera ekkert að stressa mig á sturtum þarna á svæðinu, fór bara í almennilega sturtu áður en ég fór og núna eftir að ég kom heim. Svipað með klósettferðir, ég tók mér góðan tíma á klósettinu áður en ég fór og náði að komast í gegnum alla helgina án þess að þurfað gera stórt. Enda var það ekki eitthvað sem mann langaði að gera í þessi ferðaklósett sem voru þarna. Þau voru nú alveg nógu mörg, uþb 4000 eða svo, en það dugði ekki til, sum voru allavega meira notuð en önnur - ekki meir um það. Segjum bara að það er ágætt að geta pissað standandi.
Frekknusafnarinn Frakki
Fyrst það er loksinns hætt að rigna, þá er um að gera að njóta sólarinnar og slíkt hið sama gerði ég í dag. Vitir menn, ég brann ekki (mikið), allavega ekki fyrr en ég var búinn að fá nokkrar frekknur - sem með það sama urðu rauðar og þá var ég bara brunninn. Mér er samt alveg sama, ég er allavega með nokkuð samfelldan fagurrauðan húðlit en ekki flekkóttur af frekknum.
Annað er það helst að foreldrarnir eru farnir heim og Baldvin er fluttur inn í staðinn. Það gengur ágætlega, við erum búnir að fylla alla skápa af áfengi og klósettpappír (ótengt). Mikil tilraunastarfsemi í eldhúsinu, við eigum uþb. 5 kíló af spagettí sem er farið að vera erfitt að finna nýjar leiðir til að gera spennandi. Áfengið hjálpar - allt er spennandi með nóg af áfengi.
Ég keypti mér miða á
Coachella sem er helgina 29-30 Apríl. Mikið fjör þar, nóg af böndum, meirað segja MADONNA. YES - ég get farið og hent einhverju í hana, ég er að pæla dós en það mætti vera eithvað frumlegra - td hamstur eða samankrumpaður flugdreki. Ég fer með Frikka og hans gengi, gistum (lesist 'stiknum') í tjaldi sem verður fjör. Þetta verður í miðri eyðimörkinni sem er einmitt hvers vegna við stiknum. Margt um góða takta þarna á ferð, Depeche Mode, Daft Punk, TV on the Radio og fleiri og fleiri. Verður pottþétt fjör þarna í eyðimörkinni, nóg af tækifærum til að brenna, tjútta og tralla.
Eins gott það er útsala á SPF 70 sólvörn í Walgreens (hugsaðu Hagkaup í Smáralind með lyfjadrasl)