Flugmiðar og annað pappírsdrasl
Flugmiðarnir komu í pósti í dag og eru glæsilegir ... og grænir. Við fljúgum út 6. jan, fyrst til New York, áætlaður flugtími 6 klst. Síðan frá New York til Las Vegas, áætlaður flugtími 6 klst, og svo síðasta spölinn til Santa Barbara sem á að taka tæpan einn og hálfan tíma.
Jámm, 13 klukkutíma flugtörn, með tilheyrandi braski með töskur og poka. Maður má víst vera með tvær töskur sem verða að vera undir 23kg hvor. Ég veit ekki hvað ég ætla að taka með en ég held einhvern veginn að það verði undir 40kg (segum að tóm taska sé 3kg).
Ætli ég taki ekki þrennar buxur, þessar sem ég er í plús þessar tvær sem liggja á gólfinu. Peysur, skyrtur, boli, bla, bla, bla. Nælon jakkann minn og svo kanski leðurjakkann, ég er svo helvíti montinn með hann. Sæng og kodda? Held ekki að ég þurfi dúnsæng, veit það bara ekki, tek kannski teppi. Allavega.
Ég verð að fara að grafa í geymslunni, reyna að finna eitthvað af gömlum ferðatöskum. Mamma og Pabbi keyptu sér náttúrúlega nýjar töskur þegar þau fóru seinast út og henntu hinum sem þau tóku. Ætli ég þurfi ekki að nota gömlu rauðhettu töskuna hennar Mömmu, stór - rauð - ferhyrnt, alveg eins og rauðhetta. Það er svona að eiga heimsforeldra sem eru alltaf að ferðast. Alltaf gleymist að kaupa handa Gumma. Ég þurfti að halda mér í fýlu lengi eftir að þau komu heim bæði í spánýjum leðurjökkum án þess að hafa keypt handa mér. "Hey, bara allir í nýjum leðurjakka! Nema Gummi ... hann er í dúnúlpu með lopavetlinga sem eru fastir saman með spotta." Það virkaði þó, næst komu þau heim með flottan leðurjakka handa mér og ég henti dúnúlpunni í tjörnina svo gæsirnar gætu endurheimt dúninn (það var gerfidúnn og þær köfnuðu a.m.k. fjórar).
Seinasta prófið á morgun, en hverjum er ekki skítsama um það, CALIFORNIA BABY!
Hver er hálviti - GUMMI!
Jámm, svona er það. Nú er ég búinn að sóa $75 í husteríuna í mér.
Ég var alveg viss um að þar sem á I-20 eyðublaðinu mínu stóð að ég myndi bara vera í 3 mánuði í Bandaríkjunum væri deginum ljósara að ég fengi bara VISA áritun í 3 mánuði.
Nei.
Ég fékk VISA áritun í 5 ár. Flott.
Áður en ég komst að þessu var ég búinn að borga $75 fyrir að láta gera nýtt I-20 eyðublað fyrir 6 mánuði og senda það hingað með ofur hraðþjónustu FedEx (sem síðan breytist í Olbogi-í-endaþarm-þjónustu, Grjótrassgati 4 í Hafnarfirði).
Jæja - mamma og pabbi fá þá bara enga jólagjöf í ár...
Þetta helsta
Ég er að fara sem skiptinemi til UCSB, það er University of California in Santa Barbara.
Sjá mynd.Ég verð í tvo fjórðunga sem er sambærilegt við eina önn hérna heima, janúar til júní.
Það er allt klárt (næstum allstaðar - n.a.), flugið bókað, íbúðarmál frágengin, ég er kominn með vegabréfsáritun (reyndar bara í 3 mánuði) og umsóknin mín er frágengin eftir því sem ég best veit.
Flýg út 6. janúar með mömmu og pabba. Pabbi kemur með á rannsóknarleyfi frá HÍ og mamma ákvað að skella sér með (til að spila golf og smakka rauðvín). Þau fara svo heim um miðjan mars og ég fæ að vera í friði seinni fjórðunginn, framm í júní.
Námskeiðin sem ég tek eru sambærileg við Rúmfræði, Grannfræði, Algebru II og Netafræði hérna heima. Ég er búinn að ganga frá því að þau verði metin sem slík þegar ég kem til baka. Þau heita á ensku
- 102A&B Modern Euclidean and Noneuclidean Geometry
- 108A&B Advanced Linear Algebra
- 137A&B Graph and Network Theory
- 145 Introduction to Topology
Það er ýmislegt skemmtilegt sem mig langar að gera þarna úti, ég er að setja saman lista sem ég mun skella hingað þegar hann er tilbúinn.
Þá er þetta helsta komið og gamanið getur hafist. Verst að ég flýg ekki út fyrr en eftir 26 daga.
Enn heima
Hérna ætla ég, Gummi A, að
reynað vera fyndinn skrifa um ævintýri mín í Ameríku.
Næst á dagskrá eru reyndar jólaprófin og eftir það jól og áramót, en hverjum er ekki sama um það, ég er að fara til Kaliforníu!
Stay tuned...