30°C+ og of heitt fyrir nærföt
Já, eftir helgi af rigningu af biblískum stærðargráðum kom loksins sól. Sól með meiru. Hitinn var í kringum 32°C í dag og glampandi, skínandi, brennandi sól. Eftir tíma var svo heitt að ég varð að fara heim og skipta í sundstuttbuxurnar sem ég keypti fyrir eyðimörkurgönguna Coachella, og skella mér í sund. Reyndar ákvað ég að fá mér að éta og lesa smá fyrst, og þá varð ég var við að það voru einskonar mótmæli í gangi nálægt matvöruversluninni á campus. Það voru risastór plaggöt með myndum af fóstrum sem var búið að 'eyða', þærf voru frekar blóðuguar og ógeðslegar og höfðu óneitanlegt aðdráttarafl. Ég þrammaði hænuskrefum í átt að óvirkinu þar sem ég rakst á dömu sem greinilega var með þessu liði. Hún var ósköp kurteis og ágæt að tala við hana, þó það var greinilegt að hana langaði rosalega til að fá mig hennar band. Hún átti samt nokkra góða punkta og trúarbrögð komu hvergi inn í málið, þannig að ég spjallaði við hana þangað til fylgjendur fóstureyðinga fóru að garga, sem fyrir þeim var greinilega jafngilt því að rökræða. Á meðan daman og ég vorum að tala um hvenær er hægt að draga línuna á milli fósturs og einstaklings. Sumir voru fastir á því að lífið byrji við fæðingu, en þar sem ég var tekinn með keisaraskurði fanst mér það svoldið slæm viðmiðun og var meira á því að það væri í kringum 12 vikur. Eftir að hafa spjallað við hana í uþb 10 mín og hlusta á mótmælendurna öskra í uþb 10 sek fór ég loksins í sund.
Það var snilld, þó ég hafi lítið synt og meira legið í sólinni, baðaður í SPF 30. Þeir voru mjög stolltir af því að vera nýbúnir að opna 'SPA', sem í raun var einn heitapottur. Ég hló létt að því, heitur pottur er nú ekki neitt merkilegt heima. Fyrir mér er SPA staður með starfsfólki, ekki bara pottur með vatni.
Prófum að prófa próf
Allir búnir í prófum bara, ef marka má almennu brotin sem fólk er svo hrifið af á MSN. Ég kláraði líka próf í þessari viku, verst að það voru miðsannarpróf en ekki lokapróf, það eru jú 4 vikur eftir hjá mér. Fjórar vikur af sól og sumarlestri, gerist ekki betra.
Annars er ég að reynað finna út úr því hvernig er hægt að koma bílnum og öllu draslinu sem í honum mun vera heim þegar ég fer heim. Ég er búinn að senda nokkra emila á ýmiss fyrirtæki sem bjóða upp á gámaþjónustu en þau sem hafa svarað hafa aldrei heyrt af Íslandi áður. Ég er farinn að halda að það væri einfaldara að taka frá landssvæði hérna í nágreninu og endurstofna Ísland þar sem hlutland í Ameríku. Ekki eins og það sé ekki nóg pláss, þetta væri uþb prómills aukning á íbúafjölda Bandaríkjanna.
Ef allt þetta gengur eftir þá get ég loksins bara keyrt bílinn heim.
Bannað að kúka á Coachella
Ég var að koma heim af
Coachella tónlistarhátíðinni, eða öllu heldur var ég að vakna eftir að koma heim af Coachella hátíðinni. Við ákváðum að keyra beint heim strax eftir að tónleikarnir enduðu á miðnætti á sunnudaginn og sem betur fer dugði bensínið alla leið heim, það munaði líklega ekki miklu, þetta voru rúmlega 45o mílur fram og til baka.
Af þeim sem ég sá voru Daft Punk bestir, ég tók uþb milljón vídjó (ok tæplega 30) á þeim tónleikum, þau eru
hérna á Google Video. Ég tók fult af myndum,
hérna eru þær nokkurnvegin ósorteraðar. Auk Daft Punk sá ég Tool, Depeche Mode, Sigur Rós, Madonnu, Common, Carl Cox, Ladytron, The Walkmen, Imogen Heap, Lady Sovereign, Eagles of Death Metal, Platinum Pied Pipers, Brother Ali, Yeah Yeah Yeahs, Bloc Party, Scissor Sisters, Gnarls Barkley, Coldcut, The Go! Team, Jazzanova og Murs. Frekar geggjuð hátíð, gott stuff.
Ég fór með Frikka sem er hérna úti í námi líka og vinum hans að heiman, Danna og Hildi Sigrúnu. Við keyptum tjöld og svefnpoka í Kmart og héldum af stað. Okkur var vísað á tjaldreit J5, svalasta tjaldreitinn af augljósum ástæðum. Við hliðina á okkur í J4 voru atvinnutjaldarar og hasshausar með meiru. Þau voru með stórt partýtjald, fult af stólum og vatni og voru gjafmild á það. Ég spurði, það var ekki sýra í því - sögðu þau og ég sá ekkert óeðlilegt þannig að allt í góðu. Það var líka ágætt að geta setið í skugga þegar hitinn var í kringum 27°C - í skugga, og ekki ský á himni. Coachella er nebblega í miðri eyðimörkinni og þar búa engin ský. Hátíðin var sett þannig upp að tjaldsvæðið var aðskilið frá aðalsvæðinu, og eftir að maður fór inná tónleikasvæðið var bannað að fara út og koma inn aftur, og það var bannað að taka með sér vatn eða nokkuð annað inná svæðið. Svo ef maður vildi kaupa sér áfengi, sem var leyfilegt, þurfti maður að fá armband og fara inná sérstakt svæði - bjórland - þar sem bjórinn bjó. Ekki mátti taka hann með sér út úr bjórlandi, enda leiðir slíkt til algerrar eymdar og vonleysis. Hinsvegar þurfti ekki mikið að gera til að nálgast gras, lítið meira en að draga andann djúpt og halda í sér í smá stund. Það voru bókstaflega allir með annaðhvort jónur eða pípur, undarlegt hvernig áfengi - sem var leyfilegt - var nánast ósýnilegt, á meðan gras - sem var bannað - var út um allt.
Hátíðin gekk mjög vel og ég var ekki var við neitt vesen, engin slagsmál og ekki dautt fólk útum allt. Ég sá einn gaur sem koxaði á einhverju en enga með dólgslæti eða derring eins og maður lendir í þegar allir eru rúllandi fullir. Kanski hátíðarhaldarar heima ættu að taka upp þetta kerfi, leyfa áfengi á blaði en banna í framkvæmd á meðan þeir banna gras á blaði en leyfa í framkvæmd. Það voru jú 'löggur' útum allt þarna, örugglega fleiri starfsmenn en áhorfendur, en engin virtist beita nefinu til að stofna til vandræða, og það voru engir dóphundar - þeir hefðu jú urrað á alla.
Ég ákvað að vera ekkert að stressa mig á sturtum þarna á svæðinu, fór bara í almennilega sturtu áður en ég fór og núna eftir að ég kom heim. Svipað með klósettferðir, ég tók mér góðan tíma á klósettinu áður en ég fór og náði að komast í gegnum alla helgina án þess að þurfað gera stórt. Enda var það ekki eitthvað sem mann langaði að gera í þessi ferðaklósett sem voru þarna. Þau voru nú alveg nógu mörg, uþb 4000 eða svo, en það dugði ekki til, sum voru allavega meira notuð en önnur - ekki meir um það. Segjum bara að það er ágætt að geta pissað standandi.