Prófum að prófa próf
Allir búnir í prófum bara, ef marka má almennu brotin sem fólk er svo hrifið af á MSN. Ég kláraði líka próf í þessari viku, verst að það voru miðsannarpróf en ekki lokapróf, það eru jú 4 vikur eftir hjá mér. Fjórar vikur af sól og sumarlestri, gerist ekki betra.Annars er ég að reynað finna út úr því hvernig er hægt að koma bílnum og öllu draslinu sem í honum mun vera heim þegar ég fer heim. Ég er búinn að senda nokkra emila á ýmiss fyrirtæki sem bjóða upp á gámaþjónustu en þau sem hafa svarað hafa aldrei heyrt af Íslandi áður. Ég er farinn að halda að það væri einfaldara að taka frá landssvæði hérna í nágreninu og endurstofna Ísland þar sem hlutland í Ameríku. Ekki eins og það sé ekki nóg pláss, þetta væri uþb prómills aukning á íbúafjölda Bandaríkjanna.
Ef allt þetta gengur eftir þá get ég loksins bara keyrt bílinn heim.

1 Comments:
Til hamingju með próflokin, tvö eftir hjá mér en svo ekkert meir fyrr en í fyrsta lagi í ágúst, vonandi í desember. Kíktu nú á póstinn þinn like a good little lad.
Skrifa ummæli
<< Home