San Diego
Við skruppum til San Diego um helgina, lögðum af stað á laugardaginn og komum aftur í gær. Það var mjög fínt, við náðum að fara í Dýraþrenninguna, San Diego Zoo, Sea World og Wild Animal Park. Það var ágætis veður, rigndi akkúrat á meðan við vorum inni að skoða hákarla, svo það hafði engin áhrif á okkur.Ég tók nýju myndavélina með og var duglegur að taka myndir þangað til batteríið dó, þá fattaði ég að ég hafði gleymt hleðslutækinu.
Allavega hér eru myndir, ég skrifaði inn á þær á ensku fyrir íslenskuhalta vini okkar hér í kanaríki.

1 Comments:
San Diego gæti ráðið þig til að taka promo myndir ;) Ekki ólíkar intro-inu fyrir Joey þættina sumar...
Skrifa ummæli
<< Home