Rúmdesímetri og rúmlega það
Ég ætla að byrja á að óska Baldvini góðrar ferðar heim, hann ætlar að 'skreppa' til Íslands núna yfir helgina til að vera viðstaddur þegar unnustan útskrifast úr tónlistarskólanum. Ég segi 'skreppa' vegna þess að hann er að farað fljúga í 24 tíma til að vera heima í 48. Það sem menn gera ekki fyrir ... súkkulaði.Talandi um það þá vona ég að Stiglar (og Stíglur) njóti kveðjunnar sem Baldvin færir ykkur frá mér. Tja, nema hann stingi af og komi til baka rúmdesímetranum breiðari.
Ef ykkur vantar smá öfund þá var 28°C hiti í gær og glampandi sól, strandstemming og stuð, það var tæpast hægt að greina á milli þeirra sem voru í sólbaði og þeirra sem voru að læra útí sólinni.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home