Skreppiferð
Við skruppum upp í fjöllin í dag, bara stutt, ég er að fara í próf á mánudaginn. Þar rákumst við á þessa fínu eðlu sem var að spóka sig á steini.
Hérna er útsýnið inn á land, maður sér glitta í vatnið sem maður er látinn drekka, ef manni dettur í hug að drekka úr krana hérna.
Við rákumst á helli rétt við vegin með indjánakrassi á veggjunum. Þessir indjánar voru algerir skemmdarvargar, krassandi svona útum allt...

1 Comments:
Já, þeir gerðu nú reyndar sitt besta til að losa sig endanlega við þessa óværu hér í denn, það tókst víst ekki alveg... :p
Skrifa ummæli
<< Home