mánudagur, janúar 02, 2006

Klisju listi - Kljistinn.

Ég er að setja saman lista yfir það sem mig langar að gera í Ameríkunni og þar sem ég er svangur snúast fyrstu atriðin á honum um mat (þau eru matriði ... )
  • Borða á Big Kahuna Burger Ok, slíkur staður er ekki til í alvörunni :(
  • Fara á White Castle (samnefnd mynd) og Red Lobster (Simpsons)
  • Borða á Breakfast Diner, morgunmatur allan sólahringinn - æði!
  • Fá Kínamat sendann heim um miðja nótt og japla á næstu daga.
  • Sjá hve mikið er hægt að kaupa fyrir $20 á McDonalds.
  • Smakka Root beer og Cream soda, án þess að æla ef hægt er.
Maður verður að prófa að vera með bjórhatt á íþróttaleik og drekka bjór beint úr kút í strandpartýi.
Nálægðin við Hollywood gerir það að verkum að ég ætla að sitja um nokkrar kvikmyndastjörnur og fá eiginhandaáritanir eða henda eggjum í þær, eftir atvikum.
Svo verður maður að klifra upp á HOLLYWOOD skiltið og horfa á sólina setjast í gegnum mengunarskýið sem liggur að jafnaði yfir LA. Mig langar líka að fara í þyrlutúr yfir LA, skoða borgina úr lofti.
Þar sem ég verð í Bandaríkjunum, sem eru jú byggð á réttindum fólks til að mótmæla, verður maður að mótmæla einhverju. Mér datt í hug að mótmæla aftöku einhvers, ef svo 'heppilega' hittist á ...
Veit ekki hvort ég þarf þess, en mig langar að taka bílpróf án þess að keyra beinskiptan bíl, mér finnst magnað að það skuli vera hægt.
Síðan verð ég að fara á einhverskonar nördaráðstefnu, Star Trek/Wars, Comic, Tölvuleikja, bara einhverskonar ráðstefnu þar sem eru nógu ógeðslega miklir nördar eins og maður sér í sjónvarpinu.
Vonandi kemst ég yfir að gera þetta allt saman, og ef tími gefst til þá reyni ég að læra eitthvað í skólanum þarna.

3 Comments:

At 3/1/06 21:30, Anonymous Nafnlaus said...

Djöfull öfunda ég þig að vera fara stúdera í LA! Verður örugglega geðveikt - eins gott að þú verðir duglegur að pósta einhverju sniðugu á þetta blogg.

En já, töff listi. Fór reyndar ekki á Red Lobster þegar ég var í Flórída þótt mig langað til þess bara svona til að bæta því á listann. Root beer er allt í lagi - enginn bjór keimur en smá cola bragð (minnir mig).

Þú verður líka að tékka á Waffle House til að fá þér sveittan morgunmat og Wendy's til að fá ferkantaða hamborgara (eða putta með chili-sósunni).

Síðan er náttúrulega must að fara í 7-Eleven og fá sér Big Gulp.

Tékkaðu líka hversu stórt hlutfall af þjónunum þarna eru leikarar að bíða eftir stóra tækifærinu.

 
At 5/1/06 15:06, Blogger GAK! said...

Fína tillögur, nema ég held ég reyni að forðast eigendalausa putta og lögreglubarsmíðar...

 
At 10/1/06 08:31, Anonymous Nafnlaus said...

Fara a Sizzlers madur (White man cant jump)
Annars gaman ad heyra i ther og gledilegt ar

 

Skrifa ummæli

<< Home