Þetta helsta
Ég er að fara sem skiptinemi til UCSB, það er University of California in Santa Barbara. Sjá mynd.Ég verð í tvo fjórðunga sem er sambærilegt við eina önn hérna heima, janúar til júní.
Það er allt klárt (næstum allstaðar - n.a.), flugið bókað, íbúðarmál frágengin, ég er kominn með vegabréfsáritun (reyndar bara í 3 mánuði) og umsóknin mín er frágengin eftir því sem ég best veit.
Flýg út 6. janúar með mömmu og pabba. Pabbi kemur með á rannsóknarleyfi frá HÍ og mamma ákvað að skella sér með (til að spila golf og smakka rauðvín). Þau fara svo heim um miðjan mars og ég fæ að vera í friði seinni fjórðunginn, framm í júní.
Námskeiðin sem ég tek eru sambærileg við Rúmfræði, Grannfræði, Algebru II og Netafræði hérna heima. Ég er búinn að ganga frá því að þau verði metin sem slík þegar ég kem til baka. Þau heita á ensku
- 102A&B Modern Euclidean and Noneuclidean Geometry
- 108A&B Advanced Linear Algebra
- 137A&B Graph and Network Theory
- 145 Introduction to Topology
Það er ýmislegt skemmtilegt sem mig langar að gera þarna úti, ég er að setja saman lista sem ég mun skella hingað þegar hann er tilbúinn.
Þá er þetta helsta komið og gamanið getur hafist. Verst að ég flýg ekki út fyrr en eftir 26 daga.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home