mánudagur, desember 19, 2005

Flugmiðar og annað pappírsdrasl

Flugmiðarnir komu í pósti í dag og eru glæsilegir ... og grænir. Við fljúgum út 6. jan, fyrst til New York, áætlaður flugtími 6 klst. Síðan frá New York til Las Vegas, áætlaður flugtími 6 klst, og svo síðasta spölinn til Santa Barbara sem á að taka tæpan einn og hálfan tíma.
Jámm, 13 klukkutíma flugtörn, með tilheyrandi braski með töskur og poka. Maður má víst vera með tvær töskur sem verða að vera undir 23kg hvor. Ég veit ekki hvað ég ætla að taka með en ég held einhvern veginn að það verði undir 40kg (segum að tóm taska sé 3kg).
Ætli ég taki ekki þrennar buxur, þessar sem ég er í plús þessar tvær sem liggja á gólfinu. Peysur, skyrtur, boli, bla, bla, bla. Nælon jakkann minn og svo kanski leðurjakkann, ég er svo helvíti montinn með hann. Sæng og kodda? Held ekki að ég þurfi dúnsæng, veit það bara ekki, tek kannski teppi. Allavega.
Ég verð að fara að grafa í geymslunni, reyna að finna eitthvað af gömlum ferðatöskum. Mamma og Pabbi keyptu sér náttúrúlega nýjar töskur þegar þau fóru seinast út og henntu hinum sem þau tóku. Ætli ég þurfi ekki að nota gömlu rauðhettu töskuna hennar Mömmu, stór - rauð - ferhyrnt, alveg eins og rauðhetta. Það er svona að eiga heimsforeldra sem eru alltaf að ferðast. Alltaf gleymist að kaupa handa Gumma. Ég þurfti að halda mér í fýlu lengi eftir að þau komu heim bæði í spánýjum leðurjökkum án þess að hafa keypt handa mér. "Hey, bara allir í nýjum leðurjakka! Nema Gummi ... hann er í dúnúlpu með lopavetlinga sem eru fastir saman með spotta." Það virkaði þó, næst komu þau heim með flottan leðurjakka handa mér og ég henti dúnúlpunni í tjörnina svo gæsirnar gætu endurheimt dúninn (það var gerfidúnn og þær köfnuðu a.m.k. fjórar).
Seinasta prófið á morgun, en hverjum er ekki skítsama um það, CALIFORNIA BABY!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home