Bless Kalda Land og Hlýja Þjóð
Nú styttist í stóru stundina og ég er strax farinn að hugsa með söknuði til ykkar allra sem ég er að skilja eftir. Ég ætla mér að nota tæknina og kveðja með þessum skilaboðum og þeir sem vilja taka undir geta skrifað Comment hér fyrir neðan. Sniðugt, non?Ég er uþb búinn að pakka og uþb farinn að hafa áhyggjur af því að hafa pakkað allt of miklu. Það er spurning hversu þung þessi 23kg eru eftir allt saman, og hvort þau séu eitthvað léttari hjá þeim í Bandaríkjunum. Segist bara hafa pakkað 23 víkinga kílóum, þeir geta ekkert sagt við því og ef þeir reyna þá blóta ég bara ásum eða einhverjum andskotanum til að hræða þá (og verða skotinn).
Þetta ætti nú að verða í lagi svo framarlega sem ég næ að halda aftur af lönguninni til að öskra JALLA JALLA og sveifla einhverju beittu (djöfull langar mig að prófa það).
Það fyrsta sem ég geri á morgun þegar ég vakna verður að rífa þessa tölvu í sundur og dreifa jafnt út um alla íbúð, til að minnka tap mitt ef brotist verður inn, þannig að það er best að klára kveðjuna bara núna.
Thannig ad naesta faersla sem eg geri verdur einhvernveginn svona thangad til eg nenni ad stilla lyklabordin tharna uti a Islensku.
Bless elsku fólk, bless kæra fólk og bless bara fólk ég mun sakna ykkar allra.
Gummi A.

5 Comments:
Góða ferð nafni! Sjáumst í sumar!
BLESS OG SKEMMTU ÞÉR VEL. Passaðu bara að vera nógu mikið inni svo þú komir ekki of bronzaður til baka...
Hafdu thad gott ùti!
;p
Góðaferð + góðaskemmtun
Skrifa ummæli
<< Home