miðvikudagur, janúar 18, 2006

Af tíðarblóði og öðrum tíðindum

Já, tíðarblóð. Þegar við mættum fyrst í íbúðina okkar, daginn eftir að við lentum, tók á móti okkur óþrifnaður af hæstu og iðandistu gráðu. Kellingin sem leigði íbúðina á undan okkur hafði lofað að þrífa íbúðina eftir dóttur sína sem hafði búið hérna síðustu mánuði. Sú hafði verið í skólanum, UCSB, en lent í dópinu, hafsjó af dópi, ef marka má ummerkin. Svo skemmtilega vill til að það fyrsta sem ég rak augun í, þegar við hættum okkur yfir Kakkalakkaland (dyramottuna) og inn á Blettaflöt (vínyldúkinn), var lófastór rauður blettur í Skriðbæli (teppinu). Ég held því framm að þetta sé (nb. ekki var eða 'hafi verið') tíðarblóð eða allavega einhverskonar blóð. Eftir að Hreingerningarhersveitin (sem Kellingin borgaði fyrir) tók 6-8 tíma í að þrífa, sem samt var ekki nóg, og við fórum N ferðir með teppahreinsivél yfir Rauðínu (já, ég skírði blettinn) situr hún enn sem fastast á miðju stofugólfinu. Við enduðum með að kaupa litla mottu í svipuðum lit og teppið og núna fær Rauðína að dúsa þar undir, einskonar skammarkrókur fyrir tíðarblóð...
Núna er hinsvegar allt orðið hreint og fínt, meiraðsegja Rauðína - eins hrein og best skal láta, en til staðar þó enn. Við henntum meirihluta af því sem við fundum hérna inni, glösum, áhöldum, ílátum og fleiru sem var handan björgunar. Sófinn sem var undir stofuglugganum ældi fjalli af troð (þessu hvíta gervi ógeði sem er inní honum) þegar við færðum hann til að þrífa teppið undir honum, þannig að hann endaði fyrir utan íbúðina. Planið var að ákveða hvort við ætluðum að henda honum eða reyna að þrífa og nota. Sú ákvörðun var tekin fyrir okkur því eftir að við fórum út að borða (það var ekkert til í íbúðinni, hvorki til að elda eða elda með, til að borða með né af eða sitja við né á) var sófinn horfinn þegar við komum til baka. Seinna komst ég að því að hann lifir góðu lífi enn í íbúð 12 hérna við hliðina á okkur, og eftir að honum var bætt þar við er hægt að tala um eina mublu inn í þeirri íbúð (ég tel múrsteina, pappakassa og glanspússaða járnplötu ekki sem mublur). Fólkið í íbúðunum hérna í kring er mestmegnis fátækir námsmenn, með áherslu á fátækir og námsmenn í tveimur svigum og gæsalöppum með kommum (("'svona'")). Það var frekar lýsandi gólið sem við heyrðum óviljandi daginn sem við komum að skoða - "HEY STEVE, I BLEW A .24!" - þar er átt við áfengismagn í blóði...
Nú þegar við erum búin að koma okkur almennilega fyrir og við vorum að koma með nýtt rúm (notað, keypt á $100) heim og erum búin að koma endanlegu skipulagi á svefnskipan. Mamma og pabbi hafa 2 sundurlæg rúm inní herbergi og ég fékk stóra rúmið en sef framm í stofu (allir sáttir, allavega ég og þ.a.l. allir). Pabbi komst í Craigslist.com og er búinn að þramma sem óður um þá síðu, finnandi allt frá forláta borðstofuborði með 6 stólum (sem við keyptum) niðrí notuð dömubindi sem félagsskap fyrir Rauðínu (sem við keyptum ekki)...
Ég er búinn að skrá mig í tvö námskeið, Óevklíðska rúmfræði (algjört gúmmelaði) og Tölulega greiningu ("Q: Whose calculator can tell me what 3*4 is? A: LOW BATTERY?"). Ég þarf að skrá mig í eitt námskeið enn og valdi Talnafræði, aðalega útaf gellunum þar (já, það eru sko gellur í stærðfræðinni hérna - ... ). Talandi um gellur... þær eru allstaðar hérna. Þær sem seldu okkur rúmið? Gellur! Þær sem afgreiða mann í matvöruversluninni? Gellur! Þær sem tala opinskátt um kynfarir sínar meðan þær afgreiða mann í matvöruversluninni? Gellur sem betur fer, og fá tips fyrir!
Við fórum í Skreppitúr til LA um helgina, ég keyrði djarfur á bílaleigubílnum á hraðbraut alla ströndina, gegnum Malibu (þar sem Barbie býr, við sáum hana, húsið, bílinn og furðu frjóa stóðhestinn hennar) og niður í Santa Monica. Þar fundum við ódýrt mót-hel, Pacific Sands (og sá sandur var, af herbergjunum að dæma, legsandur), og löbbuðum niðrá hina frægu Santa Monica Pier, þar sem Baywatch gerðist (og gerist enn, ég sá David Hasselhoff fremja götugjörning með litlum spegli og 5 puttum - ekkert klæmið við það). Um kvöldið röltum við göngugötu í grendinni og ég kom inn í alvöru Apple búið (OMG) en flúði áður en ég náði að festa klærnar í einhverju hvítu, plastkendu og rándýru. Þar átum við á ítölskum veitingastað með alvöru ítölskum þjóni með þykkum New Jersey hreim (þjónarnir á ítalska veitingastaðnum sem við stoppuðum á í Malibu voru alvöru ítalar, afkomendur Fasista og alles). Síðan á sunnudaginn fórum við í AMAZING LA TOUR um Beverly Hills og Hollywood og enduðum í Universal Studios. Crash course í LA, helvíti gaman. Sáum hvar Justin Timberlake á heima og hvar Marilyn Monroe átti heima. Sáum Hollywood skiltið og stjörnugangstéttina frægu. Í gær var svo Martin Luther King Jr. dagurinn og frí vegna þess, þá fórum við að kíkja á risafiðrildin sem eru hérna yfir "veturinn". Það var frekar magnað, ekki nærri eins klént og það hljómar, þau eru ca. lófastór og frekar skrautleg - og fjölmörg, hanga um 10.000 saman í knippi, og knippi út um allt. Maður gæti ímyndað sér pínulitlar leðurblökur, sérstaklega ef þau færu öll af stað í einu, trúlega stæði ekkert eftir af manni annað en beinagrindin ef maður lenti í svoleiðis.
Í dag gerðum við pabbi það gott á ebay, keyptum Cadillac á $3000 dollara, förum á föstudaginn að ná í hann til Fresno, sem er ca klukkutíma og korters akstri frá okkur - nálægt LA. Þá er allt komið, okkur vantar bara Sjónvarp, en þar sem ég er kominn með netið get ég náð í alla þá þætti sem mig langar að sjá (sagði einhver 'nýir BSG' eða '5. sería af 24'?).
Veðrið er búið að vera kallt, um 15°C - ég segi kallt bara til að stuða í ykkur heima þar sem fólki er ráðlagt að moka snjó frá ruslageymslunum HAHAHA! Vonandi fer að hlýna hérna - það er svo fúlt að þurfa að hjóla í meira en bara stuttermabol og sitja í sólinni til að hlýja sér.
Kveðja, Gummi.
Ps. ef þið viljið senda tölvupóst, senda þá á gakera@gmail.com frekar en hotmail, ég nota hann ekkert.

1 Comments:

At 18/1/06 19:33, Anonymous Nafnlaus said...

Hvenær ætlaru að fjáresta í wifebeater bol og hella gulu sinnepi á hann... ég verð að koma í heimsókn... þetta er rosalegt

 

Skrifa ummæli

<< Home