sunnudagur, janúar 29, 2006

HD Cable á 2405FPW skjá

Það er svo gaman að geta horft á Battlestar Galactica í beinni útsendingu, en það er líka gaman að horfa á það af harðadisknum í afruglaranum. Við lifum í sannkallaðri tækniparadís.
Og það er sól úti, btw, ég sé það í gegnum gluggatjöldin.
Annars hjóla ég í skólann á hverjum degi, það er ekki hægt annað, hjólreiðafólkið er búið að taka yfir göturnar hérna allt í kring, hvergi hægt að hvorki keyrna né labba. Það eru hringtorg hér líkt og heima, nema hérna eru þau fyrir hjól. Ég gat ekki annað en skellt uppúr þegar ég rakst á eitt slíkt í fyrsta skiptið, hjólaði heilan hring auka og fék ill augnaráð úr öllum áttum.
Svo eiga hjólin réttinn, ég var varaður við þegar ég fékk hjólið sem ég er á, "maður er hjólaður niður" ef maður passar sig ekki þar sem maður þarf að labba yfir hjólastígana.
Það er $150 sekt fyrir að reiða ekki hjólið sitt á göngustígunum, eða svo er manni tilkynnt á skilltum meðfram þeim. 'Nei, andskotinn' hugsaði ég, 'getur ekki verið að þeir sekti mann í alvörunni'. Svo eitt skiptið, þegar ég var að taka krók eftir göngustíg vegna framkvæmda við hjólastíginn, sé ég hvar tveir lögregluþjónar, á hjólum, eru búnir að stoppa tvær stelpur sem voru greinilega að gera líkt og ég, sleptu því að reiða hjólin. Ég vippaði mér snarlega af baki og tók við að labba með hjólið. Það var greinilegt að önnur tók þetta mjög nærri sér, hún var hágrenjandi - ekkasog og allur pakkinn. Það tók nú ekki mikið á lögregluþjóninn, hann var greinilega öllu vanur, en ég gat ekki annað en vorkennt helvítis stelpunni. "Waaaa, ég er í verkfræði og á engann pening, wwaaa. Ég drekk úr pollum og ét köngla, *sniff sniff*". Löggan var með sólgleraugu (löggusólgleraugu, ekkert minna) og starði kalt á stelpuna á meðan ég laumaði mér framhjá með mitt hjól. Ég kunni nú ekki við að stara, en er nokkuð viss um að mannfjandinn lét sektina standa - ég er ekki frá því að stelpan hafi staðið glennuleg úti á horni þegar ég var að labba heim í gærkvöldi.
Í gær fór ég nefninlega í gær að sjá standup mep John Cleese. Hann er helvíti fyndinn enn, og á svona helvíti myndarlega (og þónokkuð fyndna) dóttur sem var með honum í sýningunni. Þau tóku kaliforníu útgáfu af 'Dauða páfagauknum' þar sem í staðin fyrir páfagaukinn var 'trophy wife' í búri sem var, skv sölumanninum, als ekki dauð.
Hristi búrið, sko hún hreyfði sig!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home