Myndir!
Jæja, ég er búinn að setja inn nokkrar myndir af ferðinni sem við skruppum til LA um síðustu helgi.http://photobucket.com/albums/f366/gakera/LosAngeles14Jan/?start=all
Við keyrðum í gegnum Malibu á leiðinni niðrettir og gistum í Santa Monica, sem er hlutborg í LA. Það eru reyndar engar myndir frá ferðinni í Universal Studios, en það vita nú allir hvernig þar er um að litast (Hint: Caarazy). Pabbi tók nokkrar þar en er ekki búinn að setja þær inná tölvuna, bæti þeim við þegar þær berast.
Svo fæ ég myndavélina lánaða einhverntíman og tek fleiri myndir af flotta veðrinu sem er hérna.

2 Comments:
Hey babe, gott að þú skemmtir þér. Gunnu vantar að vita hvort aðrir MP3 spilarar en iPod ráða við hljóðbækur? Knús til ykkar allra, ykkar verður örugglega saknað á þorrablóti á morgun en ekki af mér því ég verð á árshátíð...
Sumar villurnar í Malibu gætu nú alveg passað vel inn í flottheitin í Mosfellsbænum eða Grafarvogi og aðrar eru svo ósmekklegar að ekki einu sinni snobblið á Arnarnesinu myndi vilja búa þar, en ég er náttúrulega bara öfundsjúk því ég hef aldrei séð stjörnuna hans Shatners, hvað þá áritanirnar ;)
Skrifa ummæli
<< Home