miðvikudagur, mars 01, 2006

Norðlæg átt og frost

Jámm, skítaveður er greinilega heimslægt fyrirbæri, hérna er ... ekki frost en kallt og rigning út vikuna. Rigning - með stóru ERRi. Skúrir á köflum er ekki rétta hugtakið hér eins og heima. Vatnsdropar á stærð við andarunga og mikið af þeim. Við erum að tala um sandpoka stíflu við útganginn úr blokkinni og góð ástæða til. Reyndar rignir yfirleitt bara í stuttan tíma í einu eftir sólarlag en það er á við ársúrkomu heima. Svo má segja að mér brá töluvert þegar það kom haglél um daginn. Haglél á stærð við andarunga - ok ekki alveg en samt nóg til að koma manni í uppnám í Suður Kaliforníu.
Annars er önnin farin að styttast í annan endannnn. Ég er að fara í annað miðsannarpróf í næstu viku, svo er síðasta fyrirlestrarvikan og síðan koma próf.
Eftir það er svo SPRING BREAK! WOOOBOOOOZEHOOOOT!
Jafnvel væri gaman að skreppa til Las Vegas, það er víst 'the hot ticket', það og að fara til 'TJ' - Tijuana fyrir ykkur 'hvítu'.
Sjáum hvort ég get sannfært mömmu og pabba um að fara eitthvert annað - heh.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home