sunnudagur, mars 19, 2006

Chris og Græni bjórinn

Núna á föstudaginn var St. Patrick's day og mikið fjör á fólki. Við fórum út að éta á Chilis þar sem pantaður var bjór, dökkur bjór - ekkert athugavert við það, fyrir utan að froðan var græn, sem er mjög girnilegt, sérstaklega með mat.
Svo var partý hjá Norsara nágrönnunum og svo var skroppið niðrá DP í IV (aðal partý gatan) og ráfað þangað til rétta partýið fannst. Þar var boðið uppá ókeypis bjór, sem reyndist vera ókeypis vatn með froðu, smá bragði og samasem engu áfengi.
Ég hitti alvöru Íra - Donavhan ef ég náði því rétt - mjög viðeigandi, og þegar ég sagðist vera Kristínarson ákvað hann að ég héti Chris, mun þjálla en Guðmundur fyrir þessi málhöltu grey hérna.
Það gekk ýmislegt á, einn Norsari handtekinn fyrir að vera með opinn bjór á almannafæri og öðrum Norsara dumpað af kærustunni á miðri götunni - löggu- og dömuvesen er jú nauðsynlegur hluti af skemmtilegu jammi. Vel heppnað kvöld í alla staði.
Svo var ég að þykjast læra fyrir þykjustu prófin sem ég er að fara í núna í vikunni, 3 próf, Mán Mið og Fimtudag. Fjör framundan.

1 Comments:

At 30/3/06 20:57, Anonymous Nafnlaus said...

Ekkert um spring break woohoo? Hvað er þetta, fá forvitnir Íslendingar ekkert að fylgjast með? E mail gengur líka ef eitthvað sem ekki á heima á opinberri síðu fylgir sögunni ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home