miðvikudagur, maí 03, 2006

Bannað að kúka á Coachella

Ég var að koma heim af Coachella tónlistarhátíðinni, eða öllu heldur var ég að vakna eftir að koma heim af Coachella hátíðinni. Við ákváðum að keyra beint heim strax eftir að tónleikarnir enduðu á miðnætti á sunnudaginn og sem betur fer dugði bensínið alla leið heim, það munaði líklega ekki miklu, þetta voru rúmlega 45o mílur fram og til baka.

Af þeim sem ég sá voru Daft Punk bestir, ég tók uþb milljón vídjó (ok tæplega 30) á þeim tónleikum, þau eru hérna á Google Video. Ég tók fult af myndum, hérna eru þær nokkurnvegin ósorteraðar. Auk Daft Punk sá ég Tool, Depeche Mode, Sigur Rós, Madonnu, Common, Carl Cox, Ladytron, The Walkmen, Imogen Heap, Lady Sovereign, Eagles of Death Metal, Platinum Pied Pipers, Brother Ali, Yeah Yeah Yeahs, Bloc Party, Scissor Sisters, Gnarls Barkley, Coldcut, The Go! Team, Jazzanova og Murs. Frekar geggjuð hátíð, gott stuff.
Ég fór með Frikka sem er hérna úti í námi líka og vinum hans að heiman, Danna og Hildi Sigrúnu. Við keyptum tjöld og svefnpoka í Kmart og héldum af stað. Okkur var vísað á tjaldreit J5, svalasta tjaldreitinn af augljósum ástæðum. Við hliðina á okkur í J4 voru atvinnutjaldarar og hasshausar með meiru. Þau voru með stórt partýtjald, fult af stólum og vatni og voru gjafmild á það. Ég spurði, það var ekki sýra í því - sögðu þau og ég sá ekkert óeðlilegt þannig að allt í góðu. Það var líka ágætt að geta setið í skugga þegar hitinn var í kringum 27°C - í skugga, og ekki ský á himni. Coachella er nebblega í miðri eyðimörkinni og þar búa engin ský. Hátíðin var sett þannig upp að tjaldsvæðið var aðskilið frá aðalsvæðinu, og eftir að maður fór inná tónleikasvæðið var bannað að fara út og koma inn aftur, og það var bannað að taka með sér vatn eða nokkuð annað inná svæðið. Svo ef maður vildi kaupa sér áfengi, sem var leyfilegt, þurfti maður að fá armband og fara inná sérstakt svæði - bjórland - þar sem bjórinn bjó. Ekki mátti taka hann með sér út úr bjórlandi, enda leiðir slíkt til algerrar eymdar og vonleysis. Hinsvegar þurfti ekki mikið að gera til að nálgast gras, lítið meira en að draga andann djúpt og halda í sér í smá stund. Það voru bókstaflega allir með annaðhvort jónur eða pípur, undarlegt hvernig áfengi - sem var leyfilegt - var nánast ósýnilegt, á meðan gras - sem var bannað - var út um allt.
Hátíðin gekk mjög vel og ég var ekki var við neitt vesen, engin slagsmál og ekki dautt fólk útum allt. Ég sá einn gaur sem koxaði á einhverju en enga með dólgslæti eða derring eins og maður lendir í þegar allir eru rúllandi fullir. Kanski hátíðarhaldarar heima ættu að taka upp þetta kerfi, leyfa áfengi á blaði en banna í framkvæmd á meðan þeir banna gras á blaði en leyfa í framkvæmd. Það voru jú 'löggur' útum allt þarna, örugglega fleiri starfsmenn en áhorfendur, en engin virtist beita nefinu til að stofna til vandræða, og það voru engir dóphundar - þeir hefðu jú urrað á alla.
Ég ákvað að vera ekkert að stressa mig á sturtum þarna á svæðinu, fór bara í almennilega sturtu áður en ég fór og núna eftir að ég kom heim. Svipað með klósettferðir, ég tók mér góðan tíma á klósettinu áður en ég fór og náði að komast í gegnum alla helgina án þess að þurfað gera stórt. Enda var það ekki eitthvað sem mann langaði að gera í þessi ferðaklósett sem voru þarna. Þau voru nú alveg nógu mörg, uþb 4000 eða svo, en það dugði ekki til, sum voru allavega meira notuð en önnur - ekki meir um það. Segjum bara að það er ágætt að geta pissað standandi.

5 Comments:

At 3/5/06 14:32, Anonymous Nafnlaus said...

*kúk*

omg við erum incoming til þín. 3 vikur and counting. WATCH YO SELF.

-oj

 
At 3/5/06 21:59, Anonymous Nafnlaus said...

Þú átt ekki skilið að hafa farið á Coachella og ekki farið á Tool tónleikana.

Gheyness...

-g?

 
At 4/5/06 04:34, Blogger GAK! said...

Ghey, eins og allir überghey tool fanatikkarnir sem voru þarna, srsly.

 
At 4/5/06 08:48, Anonymous Nafnlaus said...

i dont even like tool. i just think maynard is hot.

-oj

 
At 6/5/06 16:13, Anonymous Nafnlaus said...

*GRÆN AF ÖFUND*: Ég eyddi síðustu helgi í sumarbústað undir skólabókum, átt þú ekki að vera í einhverjum svaka-amerískum háskóla?

 

Skrifa ummæli

<< Home