Kapteinn tómatur og sigur Sólarinnar
Spring break, wooo! Lítið woo reyndar, hér er blautviðri og partýstand eftir því - þeas ekkert, kanar eru hræddir við rigningu. Eftir seinasta prófið á fimmtudaginn var teigaður bjór og haldið í bæinn - á hádegi. En um kvöldið skruppum við Frikki og Baldvin í bíó á V (eða H ... ), hún var góð fannst mér en hún hefur lagst misjafnt í fólk. Svo á föstudaginn tjilluðum við Frikki með bjór á meðan Baldvin flaug til Seattle. Um kvöldið fundum við svo villta tónleika - við bókstaflega gengum á hljóðið (lætin) og fundum þetta:
Villt!Frikki tók myndina, og fleiri (sjá ---> )
Eftir að þetta villta (og áfengisókeypisaða) partý endaði rölltum við í næsta hús, bókstaflega, og þar var annað partý. Meiri bjórkeypis bjór og nett lið. Svo var ráfað á perunni þangað til ég komst heim.
Helgin var þunn. En við skoðuðum blóm - fínt gegn þynnku.
Svo skruppum við í smá bíltúr, keyrðum með ströndinni í Hearst kastala og þaðan í Monterey Bay, þar sem Canary Row er (fyrir þá sem lesa bækur).
Hérna eru myndir þaðan. Þær sem ég tók inni í kastalanum eru shit, það er bannað að flassa þar. Við ætluðum að vera lengur en vegna veðurs keyrðum við heim í Íslenskri af/á rigningu á milli heimurinn-er-að-farast skúra.
Í dag er búið að vera ágætis veður og við fundum smá garð með útsýni til að sleikja sólina í, og þaðan kemur titillinn. Ég er kapteinn tómatur eftir nokkra tíma í sólskini.
Þú sigraðir núna, Sól, en ég skal eiga síðasta brunann!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home