þriðjudagur, febrúar 21, 2006

San Diego

Við skruppum til San Diego um helgina, lögðum af stað á laugardaginn og komum aftur í gær. Það var mjög fínt, við náðum að fara í Dýraþrenninguna, San Diego Zoo, Sea World og Wild Animal Park. Það var ágætis veður, rigndi akkúrat á meðan við vorum inni að skoða hákarla, svo það hafði engin áhrif á okkur.
Ég tók nýju myndavélina með og var duglegur að taka myndir þangað til batteríið dó, þá fattaði ég að ég hafði gleymt hleðslutækinu.
Allavega hér eru myndir, ég skrifaði inn á þær á ensku fyrir íslenskuhalta vini okkar hér í kanaríki.

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Drykkjusögur í öllum persónum.

Ég fór á rall á föstudaginn. Hm, ég veit ekki með aðra persónu, ég get ekki fullyrt að þú hafir farið á rall á föstudaginn en þú skrifar bara um það hér fyrir neðan. En þeir/þær/þau fóru á rall á föstudaginn, það er sko víst.
Ég byrjaði á því að fara á klassískan píanókonsert eftir ábendingu frá Baldvini. Eftir það skrapp ég til Frikka sem ég mætti þegar hann var á leiðinni út að gera aðra tilraun til að kaupa Johnnie Walker Black Label. Það þýðir ekkert minna en vegabréf til að kaupa áfengi hér á bæ, en það er nóg að koma með það einusinni, þá setja þeir mann inní kerfið með fingrafari og mynd - svona er tæknin fullkomin. Við keyptum kippu af Heineken og töltum með góssið til hans þar sem það er ólöglegt að drekka á almannafæri, svipað og heima, nema hér er fólk handtekið fyrir að fara ekki eftir því - eða svo hefur verið sagt. Eftir tvo bjóra á mann röltum við niður í Study Hall, sem er mjög sniðugt nafn á bar. Þar var fjall í dyrunum sem tók ökuskírteinin okkar og stúderaði vandlega. Hann notaði lítið vasaljós til að lýsa það á alla kannta, upp í gegnum plastið og skoðaði myndina vandlega, sjá hvort hún væri fölsuð. Ég er nokkuð viss um að gaurinn hafði ekki hugmynd um hvar á því aldurinn kæmi framm, en hann var ekkert að pæla í því, hann leit bara á kortið og mig til skiptis með köldum svip, var að vonast til þess að ég brysti í grát og játaði að hafa falsað skírteinið. Þegar ég bauðst til að sýna honum hvernig ætti að lesa úr kennitölunni kom illilegur svipur á hann, ég var sendur inn með skömm. Sem var ágætt, ég komst allavega inn. Með bjór í hönd ætluðum við að setjast á barstóla við vegginn, ég sparkaði í annan sem var hálf skakkur upp við vegginn. Þá hrifsaði gamall durgur í mig og hreytti útúr sér "Hey, that's my chair!". Hann var nú ekkert reiður þannig séð, bara virkilega gamall og drukkinn, án hans hefði meðalaldurinn verið örugglega helmingi lægri, sem er afrek því það voru svona 30 manns þarna inni. Eftir að við fundum lausa stóla fórum við að pæla í mannskapnum þarna inni. Það var greinilega systrafélags samkoma í gangi, ekkert nema píur í sínu fínasta pússi, og karlpeningur eins og píranafiskar í kringum þær. Eftir ítrekað nart og annað áreiti dilluðu píurnar sér af stað og svona helmingurinn að restinni á eftir þeim. Við fórum líka, en af algerlega ótengdum ástæðum, þær voru bara að fara í sömu átt og við. Klukkan var hálf tólf og búið að kveikaja ljósin inni á staðnum því það lokar á miðnætti, sem sukkar. Ég var í naslstuði og við fórum á ónefndan taco stað þar sem ég fékk mér 'Regular Burrito' sem síðar kom í ljós að var rúmt kíló af gumsi innpakkað í álpappír. Það var meðan ég var að berjast við að éta þetta ferlíki sem við hittum sem mest af fólki, við sátum fyrir utan og þar sem klukkan var að ganga tólf var verið að tæma staðina og allir að fá sér nasl. Þar á meðal var Gaurinn sem hélt að höfuðborg Íslands væri Boulder (sem er btw borg í Colorado), hann og 17 ára asíupíurnar sem vildu læra íslensku voru vel í glas komin og ráfuðu á braut eftir að við leiðréttum þennan misskilning og kenndum þeim að segja "Ég heiti Tiffany".
Drykkjusagan í þriðjupersónu, um Sk8 pnk gaurana í næstu íbúð, hljómsveitina þeirra, 'þú reiðst gellunni sem ég er skotinn í' dramað - gelgjupíurnar í íbúðinni á móti, grasið, glamið og glamrið, fær að bíða þangað til næst (og ég er búinn að koma því í rithæft form).

föstudagur, febrúar 10, 2006

Rúmdesímetri og rúmlega það

Ég ætla að byrja á að óska Baldvini góðrar ferðar heim, hann ætlar að 'skreppa' til Íslands núna yfir helgina til að vera viðstaddur þegar unnustan útskrifast úr tónlistarskólanum. Ég segi 'skreppa' vegna þess að hann er að farað fljúga í 24 tíma til að vera heima í 48. Það sem menn gera ekki fyrir ... súkkulaði.
Talandi um það þá vona ég að Stiglar (og Stíglur) njóti kveðjunnar sem Baldvin færir ykkur frá mér. Tja, nema hann stingi af og komi til baka rúmdesímetranum breiðari.
Ef ykkur vantar smá öfund þá var 28°C hiti í gær og glampandi sól, strandstemming og stuð, það var tæpast hægt að greina á milli þeirra sem voru í sólbaði og þeirra sem voru að læra útí sólinni.

sunnudagur, febrúar 05, 2006

Skreppiferð

Við skruppum upp í fjöllin í dag, bara stutt, ég er að fara í próf á mánudaginn. Þar rákumst við á þessa fínu eðlu sem var að spóka sig á steini.











Hérna er útsýnið inn á land, maður sér glitta í vatnið sem maður er látinn drekka, ef manni dettur í hug að drekka úr krana hérna.












Við rákumst á helli rétt við vegin með indjánakrassi á veggjunum. Þessir indjánar voru algerir skemmdarvargar, krassandi svona útum allt...Posted by Picasa