Frekknusafnarinn Frakki
Fyrst það er loksinns hætt að rigna, þá er um að gera að njóta sólarinnar og slíkt hið sama gerði ég í dag. Vitir menn, ég brann ekki (mikið), allavega ekki fyrr en ég var búinn að fá nokkrar frekknur - sem með það sama urðu rauðar og þá var ég bara brunninn. Mér er samt alveg sama, ég er allavega með nokkuð samfelldan fagurrauðan húðlit en ekki flekkóttur af frekknum.Annað er það helst að foreldrarnir eru farnir heim og Baldvin er fluttur inn í staðinn. Það gengur ágætlega, við erum búnir að fylla alla skápa af áfengi og klósettpappír (ótengt). Mikil tilraunastarfsemi í eldhúsinu, við eigum uþb. 5 kíló af spagettí sem er farið að vera erfitt að finna nýjar leiðir til að gera spennandi. Áfengið hjálpar - allt er spennandi með nóg af áfengi.
Ég keypti mér miða á Coachella sem er helgina 29-30 Apríl. Mikið fjör þar, nóg af böndum, meirað segja MADONNA. YES - ég get farið og hent einhverju í hana, ég er að pæla dós en það mætti vera eithvað frumlegra - td hamstur eða samankrumpaður flugdreki. Ég fer með Frikka og hans gengi, gistum (lesist 'stiknum') í tjaldi sem verður fjör. Þetta verður í miðri eyðimörkinni sem er einmitt hvers vegna við stiknum. Margt um góða takta þarna á ferð, Depeche Mode, Daft Punk, TV on the Radio og fleiri og fleiri. Verður pottþétt fjör þarna í eyðimörkinni, nóg af tækifærum til að brenna, tjútta og tralla.
Eins gott það er útsala á SPF 70 sólvörn í Walgreens (hugsaðu Hagkaup í Smáralind með lyfjadrasl)
