Kominn heim og vel sofinn
Þá er maður lentur og búinn að snattast heilan helling. Það var ýmislegt sem þurfti að reddast þegar ég kom, sími, banki, sólgleraugu, hár. Núna er það yfirstaðið og þá tekur alvaran við - mála og taka til í herberginu. Úff.
Annars gekk heimferðin vel, við þurftum hvergi að bíða lengi, frekar hitt, í Boston var ég kallaður upp með nafni þegar vélin var að fara. Ekkert vesen á tollinum hérna heima sem betur fer, og ég keypti mér nýjan síma í fríhöfninni. Fyndið hvernig það eina sem maður græðir á að kaupa í fríhöfninni er áfengi, allt annað er bara ekkert ódýrt. Síminn sem ég keypti var skítódýr en hann er það líka hérna í bænum svo ég sparaði ekki neitt mikið, og sá sparnaður fór svo bara í að borga reikningana hvort eð er.
Svo ætla ég að nota tækifærið og mála herbergið, það er nánast tómt þar sem ég færi fullt af drasli upp þegar ég fór út. Ég byrjaði á einum vegg í gær og ætlaði bara að skafa smá í kringum naglaförin en þá datt gamla málningin af í A4 stærðar bútum þannig ég þurfti að kaupa grunn og byrja á því.
Mín reynsla af viðhaldi er aldrei byrja.
Sex Flögg og hálft-sex próf
Þar sem ég á að verað læra er náttúrulega tilvalið að blogga í staðinn. Ég átti alltaf eftir að setja myndirnar ú Six Flags á netið síðan við fórum þangað fyrir uþb mánuði. Þá fékk ég heimsókn frá Óla, Vidda og Gunna Who, sem var mjög gaman, fínt að geta verið maður sjálfur án þess að allir haldi að maður sé klikkaður.
Við fórum út um allt, byrjuðum á því að keyra til LA og gistum í Santa Monica í tvær dýrar nætur. Fórum á Hooters, skylda, sem var magnað. Það er engin lygi, gellurnar þar er frekar fokkin flottar. Við sátum alveg við innganginn og höfðum ágætis útsýni á sætu sætavísu skvísuna. Það var bannað að taka myndir.
Seinna kvöldið byrjuðum við á aðeins fínni stað með töluvert betri mat, undarlegt en satt þá var hann samt jafn dýr og Hooters, en við tókum ekki eftir því fyrr en þá, enginn pældi í því á Hooters. Svo fórum við á sportbar þar sem okkur tókst að eyða enn meiri pening og Viddi og Gunni í ölæði sínu stálu poolborði af einhverjum gaurum sem svo rústuðu þeim ... í pool. Þegar við vorum búnir að eyða nóg af pening þar fórum við á stað sem hét einfaldlega 217, þar var $5 'skyldu frjálst framlag' sem átti víst að fara til góðs málefnis. Ok, hef séð það verra. Svo þegar við komum inn var verið að bjóða upp fólk. Við höfðum víst álpast inn á þrælauppboð. Sannleikurinn var ekki svo slæmur, þetta var 'date auction' þar sem fólk gat borgað fyrir mismunandi súr stefnumót með þeim sem var verið að bjóða upp. Akkúrat þegar við löbbuðum inn var verið að bjóða í gaur í jakkafötum en það lagaðist snarlega þegar næstu 3 uppboð voru gellur, og sumar ekki amalegar, sérstaklega sú sem reif utan af sér kjólinn. Svo kom shokkerinn, tveir bræður voru til boða og salurinn brjálaðist. Ég og Óli sátum rólegir í VIP horninu aftast á meðan Viddi var að reyna við allt sem hreyfðist og Gunni var uppá sviði að dansa. No lie. Það munaði minstu að hann hefði verið boðinn upp.
Eftir ævintýri okkar í LA var farið í
Six Flags, sem er frekar magnaður rússíbanagarður. Þar rákumst við á Berg af
bergur.is frægð sem hafði komið frá San Diego þar sem hann var að læra að hlaupa. Við vissum nú af honum þarna en rákumst samt á hann nánast eins og það hefði verið óvart. Um þá rússíbana sem við fórum í er allt gott að segja, fyrsti var ný opnaður og frekar krazy, eins og sést á
meðfylgjandi myndum. Maður settist í sætin
svona og fór svo af stað
svona. Frekar klikkað. Síðan biðum við í 3 klukkutíma í röð fyrir einn rússíbana. Rétt er það, 3 heila klukkutíma fyrir einn rússíbana, ekkert meir. Hann var þess virði. Rétt er það, hann var þess fokking virði. Hann hét einfaldlega
X og var klikkaður. Við Gunni náðum að bókstaflega hlaupa á milli rússíbana, komumst í 6 stykki sem er frekar gott miðað við að 3 af 8 klukkutímum í garðinum vorum við í einni röð. Mjög gott bara.
Svo sendi ég strákana heim með fullt af drasli fyrir mig sem ég nennti ekki að taka sjálfur. Um að gera að nota ferðina.
Og nú sit ég hér og á að verað læra fyrir 2 próf og skrifa eina lokaritgerðakippu, 5 stuttar og 2 langar ritgerðir. Sem er undarlegt þar sem alla mína háskólagöngu heima hef ég ekki notað fleiri orð en {lát, svo að, þá er, komið}, frekar mikil breyting að þurfa að farað nota nafnorð og sagnir aftur.