Kominn heim og vel sofinn
Þá er maður lentur og búinn að snattast heilan helling. Það var ýmislegt sem þurfti að reddast þegar ég kom, sími, banki, sólgleraugu, hár. Núna er það yfirstaðið og þá tekur alvaran við - mála og taka til í herberginu. Úff.Annars gekk heimferðin vel, við þurftum hvergi að bíða lengi, frekar hitt, í Boston var ég kallaður upp með nafni þegar vélin var að fara. Ekkert vesen á tollinum hérna heima sem betur fer, og ég keypti mér nýjan síma í fríhöfninni. Fyndið hvernig það eina sem maður græðir á að kaupa í fríhöfninni er áfengi, allt annað er bara ekkert ódýrt. Síminn sem ég keypti var skítódýr en hann er það líka hérna í bænum svo ég sparaði ekki neitt mikið, og sá sparnaður fór svo bara í að borga reikningana hvort eð er.
Svo ætla ég að nota tækifærið og mála herbergið, það er nánast tómt þar sem ég færi fullt af drasli upp þegar ég fór út. Ég byrjaði á einum vegg í gær og ætlaði bara að skafa smá í kringum naglaförin en þá datt gamla málningin af í A4 stærðar bútum þannig ég þurfti að kaupa grunn og byrja á því.
Mín reynsla af viðhaldi er aldrei byrja.

1 Comments:
Ahoy, velkominn heim.
Skrifa ummæli
<< Home