30°C+ og of heitt fyrir nærföt
Já, eftir helgi af rigningu af biblískum stærðargráðum kom loksins sól. Sól með meiru. Hitinn var í kringum 32°C í dag og glampandi, skínandi, brennandi sól. Eftir tíma var svo heitt að ég varð að fara heim og skipta í sundstuttbuxurnar sem ég keypti fyrir eyðimörkurgönguna Coachella, og skella mér í sund. Reyndar ákvað ég að fá mér að éta og lesa smá fyrst, og þá varð ég var við að það voru einskonar mótmæli í gangi nálægt matvöruversluninni á campus. Það voru risastór plaggöt með myndum af fóstrum sem var búið að 'eyða', þærf voru frekar blóðuguar og ógeðslegar og höfðu óneitanlegt aðdráttarafl. Ég þrammaði hænuskrefum í átt að óvirkinu þar sem ég rakst á dömu sem greinilega var með þessu liði. Hún var ósköp kurteis og ágæt að tala við hana, þó það var greinilegt að hana langaði rosalega til að fá mig hennar band. Hún átti samt nokkra góða punkta og trúarbrögð komu hvergi inn í málið, þannig að ég spjallaði við hana þangað til fylgjendur fóstureyðinga fóru að garga, sem fyrir þeim var greinilega jafngilt því að rökræða. Á meðan daman og ég vorum að tala um hvenær er hægt að draga línuna á milli fósturs og einstaklings. Sumir voru fastir á því að lífið byrji við fæðingu, en þar sem ég var tekinn með keisaraskurði fanst mér það svoldið slæm viðmiðun og var meira á því að það væri í kringum 12 vikur. Eftir að hafa spjallað við hana í uþb 10 mín og hlusta á mótmælendurna öskra í uþb 10 sek fór ég loksins í sund.Það var snilld, þó ég hafi lítið synt og meira legið í sólinni, baðaður í SPF 30. Þeir voru mjög stolltir af því að vera nýbúnir að opna 'SPA', sem í raun var einn heitapottur. Ég hló létt að því, heitur pottur er nú ekki neitt merkilegt heima. Fyrir mér er SPA staður með starfsfólki, ekki bara pottur með vatni.

1 Comments:
úff já þeir ættu þá að sjá alla "spa"-staðin hér heima!!! :D
Skrifa ummæli
<< Home